Aðalvalmynd

Svona er ég.

  • Nafn: Eva María Friðriksdóttir
  • Staður: Akureyri
  • Atvinna: Grafari ;-)

Auglýsing

Klukkan

Nýjast á HumorPix

Funny Images, Why I’m watching the summer olympics Funny Images, How to answer every True or False quiz Funny Images, Always makes my morning pee a tad more delightful. Funny Images, I wonder how the boss will take it… Funny Images, BukCookie Funny Images, Fun With Perspective

Tjékk itt át!

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Flottastir!!

27. janúar 2008 klukkan 20:11

Við fórum í dag og hittum á rúsínuna okkar. Prins fór með en var nú ekki alveg sama. Honum fannst þessir litlu pjakkar vera heldur ágengir... Óákveðinn

Dreki er 6 vikna í dag þannig að eftir tvær vikur ættum við að mega ná í hann. Hlæjandi


Ég ætlaði að setja fleiri myndir af Dreka inn en tölvan er með kjaft þannig að ég ætla að reyna að halda áfram að setja eitthvað inn.


En endilega hringið í mig ef þið viljið koma í nudd. Alls ekki vera feimin eða eitthvað svoleiðis. Það er hægt að biðja bara um hvaða part sem er... það þarf ekki að nudda allt í einu Glottandi

Ég ætla að kikka aðeins á telly-ið. Skrifa örugglega aftur Svalur


Mín að standa sig bara.!

24. janúar 2008 klukkan 16:47

Jájá, nú er maður bara duglegur. En þetta verður bara stutt í dag. Ég er að fara í skólann eftir smá.

En þetta litla kríli hefur fengið nafnið Dreki Glottandi okkur fannst það passa vel við hann, alla vegana festist það í okkur og þá var bara ekki aftur snúið.

Við eigum von á því að fá hann 10. feb eða rétt eftir það.

Það verður gaman að sjá hvernig Prins bregst við þessu. Honum er nefnilega ekkert alveg sama ef við tölum við aðra hunda og svo ef hann hefur ekki séð mann lengi og hann og Garpur koma til að heilsa upp á mann þá reynir hann alltaf að hoppa upp í fangið á manni eða urrar og glefsar í eyrað á Garpi, bara svona svo það sé á hreinu hver á þessa eigendur!!


En annars er bara lítið að frétta. En ætli ég drífi mig ekki bara í skólann svo ég verði einhvern tíman komin heim í kvöld.

Neee... ert þú enn á lífi???

21. janúar 2008 klukkan 18:52

Hehehe... jæja góðan daginn.

Þetta er nýjasti fjölskyldumeðlimurinn sem er á myndinni fyrir ofan. Hann hefur ekki enn fengið nafn en það fer örugglega bráðum að detta í hausinn á okkur. Hann er ekki nema 5 vikna þannig að við fáum hann ekki alveg strax.

En annars er bara allt gott að frétta.

Ég er hætt í kirkjugarðinum og er byrjuð í dagskóla en það er alveg afskaplega lítið sem ég er í skólanum. En annars er ég bara að reyna að nudda hérna heima (ef ykkur langar í nudd, endilega hringið í mig 8678472 það er alls ekki dýrt) svo hef ég fengið eitt og eitt nudd á Abaco.

Annars er nú ekki mikið að frétta

Kannski ég reyni að fara að sinna þessari síðu minni eitthvað....

En læt þetta duga í bili.

Fimmtudagur til fjárs...? Eða...

08. nóvember 2007 klukkan 14:17

Það er afskaplega lítið að gerast hérna megin við skjáinn.

En þegar Jeltsín er fainn að hafa í hótunum þá er eins gott að verða við hans óskum!

Biggi keypti seríu 1 & 2 af Prison Break og við erum búin að vera húkkt á því seinustu daga.

Prinsinn er algjört dekurdýr. Hann svoleiðis nýtur þess að koma í Lerkjó því þar á hann ömmu sem vill gera allt fyrir hann. Þeirra samband byrjaði samt heldur brösulega þar sem hann skeit á gólfið og mamma var svo heppin að stíga ofan í það. Það dugði ekki fyrir Prinsinn að það hefði gerst einu sinni heldur þurfti hann að gera þetta þrisvar og alltaf var mamma svo heppin að stíga ofan í það....

En annars þá gengur bara fínt hjá okkur. Hundurinn stækkar bara og stækkar og það verður gaman að sjá hvað hann er búinn að þyngjast mikið þegar hann fer til Elfu dýralæknis á morgun eða hinn.


Núna verður löng helgi hjá mér í nuddinu og það á eftir að verða verulega leiðinlegt þar sem ég er með frekar mikið kvef og hnerra bara og hnerra. Svo á að prófa okkur og ath hvort við kunnum rútínuna og getum gert þetta á réttum tíma. Ég held ég sé í djúpum skít þar sem ég hef ekki getað æft mig neitt. En maður verður bara að vona það besta.


Ég er samt alveg að gefast upp... Ég bíð bara eftir því að desember komi og verði helst búinn líka. þá minnkar aðeins dagskráin hjá mér....

jæææjaaa....

24. október 2007 klukkan 19:56

Amma fór aftur suður í dag og fer í aðgerð á hjarta á morgun...

Læknirinn talaði við okkur í gær og sagði að þetta yrði ekkert vandamál. Þetta á víst að vera tiltölulega auðveld aðgerð. Fjölskyldan var aðeins að spurja út í þetta og ein spurningin var hvort þetta yrði tíu tíma aðgerð, það lá við að doksi hefði farið að hlægja... nei nei þetta tekur bara tvo tíma. Svo þegar ömmu var sagt þetta eftir fundinn þá sagði hún 'Tíu tímar? Piff heldur þú að ég myndi nú nenna að fara að liggja þarna á borðinu í tíu tíma???'  hehehe... amma góð en ég var nú ekkert að koma með það á móti að þegar það væri búið að svæfa hana þá ætti hún nú engra annarra kosta völ, kella skildi bara sofa eins lengi og hún væri dópuð fyrir.

Haldiði að það yrði ekki skemmtilegur svipurinn á læknunum ef kella myndi allt í einu vakna og segja 'Hvernig væri nú að fara að herða sig hérna? Ég er að verða örlítið þreytt á að liggja hérna og er farin að fá í bakið!!' hehehe Ullandi

Eina spurningin sem ég velti fyrir mér var hvar þeir myndu fá æð til að skipta út fyrir þá sem er ekki að standa sig... Það eina sem mér datt í hug var að þeir myndu bara fá eina góða úr svíni og redda því þannig en svo kom seinna í ljós að þeir taka æð úr fótleggnum. Og það er enginn bútur það er bara lengdin á kálfanum og stundum upp í læri. Það er bara svo þeir geti valið besta hlutann...

Þá kom að sjálfsögðu aftur upp sú spurning hvað yrði þá gert við alla þá lengt sem vantar í kálfann. Ekki teygja þeir bara á endunum og skeita þeim saman?? Ímyndið ykkur grey gömlu , nærrum því helmingi styttri öðrumegin. Það hlýtur að vera að þeir reddi þessu með svínsæðum eða einhverri álíka fíngerðri dýragerð...


Í gærkvöldi var ég beðin um að vinna á Kaffi Ak. Það var eitthvað major vesen í gangi þannig að sjálfsögðu koma The Eve og reddaði málunum. Það var lítið sem ekkert að gera. Kalli prentari með vesen en Biggi Torfa sá alveg um það. Svo klukkan 12 þá nennti ég ekki að hanga þarna lengur ein þannig að ég ákvað bara að loka og var komin heim um hálf eitt. Ég var ekkert afskaplega spræk í morgun. Afi er búin að spurja mig tvo daga í röð hvort ég sé lasin. Svo þegar ég kom í skólann eftir vinnu þá sagði ég við Sirru að ég hefði ekki mikla orku í að nudda en ef það vantaði á bekkinn... Þá sagði hún 'Eva mín, farð þú bara heim. Þú ert bara lasin!! Það er ekki til  litur í andlitinu á þér.'

Það hefur þá bara verið heppni að hún hafi getað séð mig!!! Glottandi


Gamlinn minn á afmæli á morgun og haldiði að kallinn verði ekki bara SEXTUGUR!!!

Hjötti ætlar að hafa smá kaffi hérna en ekki mikið meira en það  hehehe... rólegur á því bara.


Svo fáum við Prins á laugardaginn. Það er alveg smá spenna í manni. Það verður gaman að sjá hvort það sé eitthvað hægt að ala þetta dýr upp svo það svari nafninu sínu og hlýði.


Ég man ekki eftir meiru.


úps...

02. október 2007 klukkan 21:28

Eins og Elín er nú skörp þá rak hún augun í að ég skrifaði að hundurinn hefði fæðst 2. desember. Skömmustulegur

En það er ekki alveg rétt. Hann fæddist 2. september og þess vegna megum við ekki taka hann til okkar alveg strax.  Glottandi

En við eigum eftir að fá hann aðeins lánaðann áður en hann má fara alveg frá mömmu sinni því við þurfum að fara með hann í sprautur og svo er mælt með því að hvolpurinn komi í smá stund til þess að venjast umhverfinu eða eitthvað svoleiðis.Brosandi

                                     


Bílinn minn bilaði Óákveðinn vatnskassinn gafst upp.... það er ekki alveg nógu gott. En það er ekkert vandamál að fixa það. Það á nýr að koma að utan á morgun. Þannig að það styttist í að það verði allt í góðu á þeim bænum.


Um seinustu helgi hélt Dóri upp á tvítugs afmælið sitt. Ég og Biggi fórum til hans og það var bara rosalega gaman. Fyrst byrjuðum við samt á því að fara í mat til Hreiðars og Jóhönnu og fórum svo til Dóra. Þar drukku flestir mikið og voru vel ölvaðir þegar þeir komu niður í bæ. Ég skrapp til Heiðrúnar og hitti Elvu þar áður en við fórum í bæinn.

Það var bara mjög gaman því ég drakk frekar rólega og lítið þannig að ég var bara svona semi allan tíman. Ég átti nefnilega eftir að læra svo mikið á sunnudeginum Ullandi


Afi gamli átti afmæli í gær og ég var svo góð að elda fyrir hann afmælismatinn. Það hafði staðið til í nokkurn tíma. En svo mætti kallinn ekkert!!! Hissa

Ég vissi það samt að hann myndi ekki koma því amma er á sjúkrahúsinu í Reykjavík og gamli er náttúrulega hjá henni. Þannig að ég eldaði bara samt því frændfólk okkar frá Eskifirði var hérna Glottandi


jamm jamm...

ég ætla bara að hætta þessu núna Koss

Gaman gaman!!!

01. október 2007 klukkan 17:35

Ég og Biggi vorum að fá þessa litlu rúsínu sem sefur í fanginu á Bigga á myndinni fyrir ofan.

Við reyndar fáum hann ekki fyrr en um miðjan nóv eða í byrjun des. Hlæjandi

Hann nefnilega fæddist bara 2. des Glottandi

Það er þá alla vegana bara nægur tími til að gera klárt það sem þarf að vera tilbúið áður en hundurinn kemur til okkar.Ullandi



24.09.07

24. september 2007 klukkan 20:46

lúblíjana....


Það er mjög margt búið að gerast síðan ég bloggaði síðast!!!!


Ég bara man ekki mjög mikið af því sem gerðist Óákveðinn


en það er búið að vera svo mikið að gera hjá mér að ég hef lítið séð fjölskylduna mína undanfarið.

fimmtudaginn 13 sept byrjaði nuddskólinn og stóð yfir alla helgia. þannig að á fimmtudaginn var ég að vinna frá 8-16.30 og svo skóli frá 17 -21

á föstudaginn var ég að vinna frá 8-15.30 og svo skóli frá 16 -21

á laugardaginn var skóli frá 9-17

á sunnudaginn var skóli frá 9-16

svo kom ný vika en þá tók ekkert skárra við

það var bara venjulegur vinnudagur á mánudeginum

svo á þriðjudaginn fór ég í vinnuna klukkan 8 og var að vinna þangað til ég þurfti að mæta í skólann kl.16 og var í skólanum til 19

svo fór ég í vinnuna á miðvikudaginn og var þar þangað til ég þurfti að fara í skólann kl 17 og var í skólanum til 21 og fimmtudagurinn var eins.

svo á föstudaginn var ég í vinnunni til 17 og þurfti svo að mæta í vinnu á kaffi ak kl 24 og var þar til 5

á laugardaginn fór ég í sund og hafði það bara þokkalegt. en þurfti svo að mæta í vinnu kl 21 og var þar til 5.

og vá hvað ég var eiginlega bara sibbin í allan gærdag. ég vaknaði kl 13 og fór eitthvað út og brasaði eitthvað en um 17 þá lagðist ég upp í rúm á meðan Biggi fór í tölvuna og ég svaf þar í tvo tíma. en samt þá var ég komin upp í rúm kl 23 og sofnuð.


svona verða vikurnar fram að jólum nema ég fæ eina helgi fría í mánuði.


En annars þá heldur lífið bara áfram og ég hef bara haldið áfram að lenda í svona líka skemmtilegum óhöppum. ég var send upp á hauga á dráttarvélinni með stóru kerruna fulla af trjágreinum og grasi. og það vildi svo vel til að þegar ég var að sturta þá sat allt fast í helv... kerrunni! ég ætlaði að reyna að láta kerruna aftur niður en hún haggaðist ekki! ég ætlaði svo ekki að þurfa að kalla á hjálp en þurfti það á endanum þegar ég var búin að ná kerrunni niður en engu úr henni. þannig að í raun þá var það ekki ég sem beyglaði hlerann heldur helv... trjágreinarnar.

 

svo afrekaði ég það að tjóna aðeins eitt stakketi í kirkjugarðinum með gröfunni. það er að sjálfsögðu grafalvarlegt mál en það var ekki það mikið sem ég tjónaði þannig að ég ætla að vona að það reddist allt saman.


Balli kom til mín í heimsókn upp í garð og skoðaði gröfuna og var bara mjög ánægður. en hann var svo ennþá ánægðari þegar hann fékk að prufa að keyra gröfuna og hreyfa allt sem hægt var að hreyfa Glottandi


en það allra minnistæðasta af vikunni var þegar ég þurfti að fara á gröfunni á möðruvelli. það tók mig klukkutíma að fara frá kirkjugarðinum og á möðruvelli. það tekur vanalega um 10 mínútur eða korter!! en vélin kemst bara á 20 km hraða þannig að það var mjög skemmtilegur rúntur Svalur


og þannig var það nú!!

Hjörtu eru ekki góð....

06. september 2007 klukkan 20:44

ég veit svo sum ekki hvað ég á að skrifa hérna...


ég fór í fyrsta vöðvafræði tímann á þriðjudaginn. þetta á eftir að verða erfitt en örugglega gaman. nú þarf ég virkilega að leggja á minnið fullt af orðum en ég þori ekki að að treysta á heilann minn. það er alveg furðulegt hvað ég man það sem hefur enga merkingu og skiptir engu máli!! og svo er það annað... ég man bara ekki neitt!


Seinasta föstudag gerðist ég afleysinga bílstjóri Ullandi ekki það að ég hafi ekki nú þegar verið það en ég fór að vinna á leigubíl í fyrsta skiptið þá Glottandi það var bara nokkuð fínt. sumir kallarnir voru nú bara ánægðir að fá svona unga stelpu að keyra sig. og sumir kannski heldur ánægðir. einn sat bara og horfði á mig alla leiðina og skildi greinilega ekkert í þessu, svo var hann svo fullur að ég skildi ekkert af þessu muldri hans. þegar ég losnaði loksins við hann út úr bílnum hélt ég að hann ætlaði aldrei að loka hurðinni, hann bara stóð þarna og horfði á mig. freeeekar krípí kall þar á ferð skal ég segja ykkur!

ég stóð mig svona helvíti vel að mamma var spurð í fyrradag hvort ég gæti ekki tekið við leigubíl eins manns í tvær vikur. hann sagði að mér hefði gengið svo vel, það hefði ekki verið neitt vesen hjá mér Brosandi

en samt er alveg bölvanlegt að sitja svona lengi í bíl. ég var að deyja úr verkjum í bakinu  þegar ég fór út úr bílnum kl 6.30 Fýldur  fyrst til að byrja með  daginn eftir gat ég ekki sest niður eða setið í bíl því þá fékk ég svo mikla stingi í bakiðGráta  en svo skánaði þetta.


svo á morgun og á laugardaginn er ég að vinna á kaffi ak.  það er alveg nóg að gera hjá mér...


svo allt í einu varð sprenging í dauða hérna á ak..

það var jarðaför í dag og það er jarðaför á morgun og það verður jarðaför á mánudaginn. það hafa varla verið svona margar jarðafarir í allt sumar.

hehehe... ég segi það nú kannski ekki en það hafa alveg liðið tvær til þrjár vikur á milli jarðafara.

en svona er þetta víst. það kólnar eilítið og gamla fólkið hrinur niður í hrönnum.

nei þetta var djók!! það er ljótt að segja svona. virkilega ljótt

svo ljótt að ég ætla bara að hætta þessu núna áður en ég segi eitthvað meira ljótt!!

uss uss!!!

25. ágúst 2007 klukkan 05:59

Vá hvað ég hata rússa!!

Þetta eru bara vælukjóar og aumingjar upp til hópa...

Það er alla vegana mín skoðun.